Íslenskt fjallalandslag

Sérhæfð lögmannsstofa á réttarsviðum tengdum viðskiptalífinu.

Starfsmenn Dranga hafa fjölbreytta reynslu og sérþekkingu sem gerir okkur kleift að sinna umfangsmiklum og flóknum verkefnum.

Hafa samband
Um okkur

Í hröðum og síbreytilegum heimi viðskipta er nauðsynlegt að lögmannsstofur bregðist skjótt og vel við.

Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar skilvirka ráðgjöf, sérsniðna að þörfum hvers og eins hverju sinni.

Starfssvið

Réttarsvið tengd viðskiptalífinu.

Drangi veitir fyrirtækjum sem starfa við sjávarútveg og orkuvinnslu ráðgjöf varðandi starfsemi og regluverk á þeim sviðum, svo sem við gerð orkusölusamninga, öflun starfsleyfa og vinnu við umhverfismöt.

Lögmenn Dranga hafa áralanga reynslu af því að veita fyrirtækjum ráðgjöf um hvers kyns málefni á sviði félagaréttar, til að mynda um stofnun félaga, skipulagningu samstæða, breytingar á hlutafjárskipan, málefni hluthafa og skiptingu og slit félaga. Þá hafa lögmenn Dranga umfangsmikla reynslu við ráðgjöf á sviði stjórnarhátta fyrirtækja, bæði skráðra og óskráðra.

Drangi starfar fyrir banka og fjármálafyrirtæki varðandi starfsemi og regluverk á fjármagnsmörkuðum, þar á meðal í tengslum við útgáfur og viðskipti með hefðbundna og samsetta fjármálagerninga, skipulagningu fjárfestingarsjóða, innri reglur og verkferla.

Drangi býður upp á alhliða ráðgjöf þegar kemur að fjármögnun fyrirtækja og verkefna, hvort sem um er að ræða eignafjármögnun, rekstrarfjármögnun, yfirtökufjármögnun, framkvæmdafjármögnun eða samsetta fjármögnun.

Lögmenn Dranga sinna málarekstri og málflutningi á stjórnsýslustigi, fyrir öllum almennum dómstólum landsins og gerðardómum.

Drangi veitir fyrirtækjum hvers kyns ráðgjöf á sviði samkeppnisréttar, hvort sem er í tengslum við samrunatilkynningar eða málsmeðferð fyrir samkeppnisyfirvöldum vegna meintra samkeppnishamla.

Drangi veitir skráðum og óskráðum fyrirtækjum alhliða ráðgjöf við samruna og yfirtökur, meðal annars við skipulagningu og þátttöku í söluferlum, framkvæmd áreiðanleikakannana og gerð kaupsamninga og samrunaáætlana.

Ráðgjöf Dranga á sviði skuldaskila og endurskipulagningar fyrirtækja nær til allra þátta sem koma til skoðunar þegar vinna þarf úr fjárhagserfiðleikum, allt frá einkaréttarlegum úrræðum til lögbundinna úrræða á sviði gjaldþrotaréttar.

Ráðgjöf Dranga á sviði vátryggingaréttar snýr einkum að sérhæfðum vátryggingarsamningum, svo sem vegna verktrygginga, stjórnendatrygginga, trygginga vegna ábyrgðaryfirlýsinga og endurtrygginga.

Lögmenn Dranga veita fyrirtækjum og opinberum aðilum ráðgjöf við útboð verksamninga og hvers konar verkframkvæmdir og þjónustu, ásamt því að gæta hagsmuna aðila í ágreiningsmálum í þessum efnum.

Markmið okkar

Við kappkostum að byggja upp og styrkja langtímasambönd við viðskiptavini með það höfuðmarkmið að stuðla að verðmætasköpun þeirra.

Starfsmenn

Guðjón Rúnarsson

Guðjón er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Guðjón hefur lengst af á sínum starfsferli starfað við hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf, fyrst hjá Viðskiptaráði og síðar Samtökum fjármálafyrirtækja. Guðjón þekkir því vel regluverk og starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, ekki síst á fjármálamarkaði. Þá hefur Guðjón verið skipaður í opinberar nefndir í tengslum við regluverk og stefnumótun á fjármálamarkaði.

Starfsferill

  • Drangi lögmenn frá 2018
  • Atlantik lögfræðiþjónusta 2017–2018
  • Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og forvera þeirra 2000–2016
  • Aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs 1998–2000
  • Alþingi 1993–1997

Menntun og réttindi

  • Löggiltur verðbréfamiðlari 2001
  • European University Institute, LL.M í evrópskum félaga- og samkeppnisrétti 1998
  • Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1996
  • Háskóli Íslands, cand. jur. 1993
Guðjón Rúnarsson, lögmaður